Málþroskaröskun DLD er dulin skerðing sem kemur fram snemma hjá börnum og viðhelst fram á fullorðins ár. Einkennin birtast oft í fleiri villum í máli, einföldum setningum og erfiðleikum með að skipuleggja samræður. Erfiðleikana getur verið erfitt að sjá jafnvel fyrir þá sem hafa sérhæft sig á svið sem tengjast máli/tali.
Málþroskaröskun er vandi sem krefst þess að hann sé greindur sem fyrst hjá barni og talmeinafræðingar geti kortlagt bæði veik- og styrkleika barnsins. Út frá kortlagningunni er síðan unnið markvisst með barninu og öllu nærumhverfi þess til að leggjast á eitt við að hámarka árangur íhlutunar.
Málþroskaröskun DLD er mun algengari en fólk heldur, um 7% fólks í heiminum eru með hana eða t.d. 1-2 í hverjum bekk. Málþroskaröskun hverfur ekki með aldrinum og tekur röskunin á sig mismunandi birtingarmyndir eftir aldri einstaklings.
Málhljóðaröskun SSD er regnhlífarhugtak yfir vanda tengdan talskynjun, hljóðamyndun og framburði.
Nánar:
- Hvað er málþroskaröskun DLD?
 - Vísindavefurinn: Hvað er málþroskaröskun? (visindavefur.is)
 - Staðreyndir um málþroskaröskun DLS (malefli.is)
 - Hvað er málþroskaröskun? – DFS.is
 - Málþroskaröskun DLD – Menntastefna
 - Málþroskaraskanir | Lesvefurinn (hi.is)
 - Málþroski | Kennsla nemenda með sérþarfir (serkennslutorg.is)
 - Orðaforðakennsla með sögulestri fyrir börn með málþroskaröskun (hi.is)
 - Alþjóðlegur dagur málþroskaröskunar er í dag | Ráðgjafar- og greiningarstöð
 

